Píanó-leikur 1., 2. og 3. hefti eru kennslubækur fyrir nemendur á upphafsárum píanónáms.
Í bókunum eru lög af ýmsum stíltegundum, m.a. blús, ragtime, popp og þjóðlög frá ýmsum löndum, í léttum útsetningum Björgvins Þ. Valdimarssonar fyrir nemendur í grunnnámi.
Bækurnar hafa notið vinsælda hjá nemendum og kennurum í tónlistarskólum landsins frá fyrstu útgáfu. Árin 2014 og 2015 var ritröðin endurútgefin mikið endurbætt eftir þriðju endurskoðun á efninu síðan 1990.
Á heimasíðu bókanna Píanónám.is er hægt að hlusta á lögin í bókunum og einnig er undirleikur með fjórhentu lögunum.
Höfundur bóka og útsetninga: Björgvin Þ. Valdimarsson. Myndahöfundur: Sigríður M. Njálsdóttir.
Nótnaútgáfa BÞV – 2015 – ISMN 9790902030526 – A4 (hákilja) – 47 bls.
Nótnaútgáfa BÞV – 2015 – ISMN 9790902030526 – A4 (hákilja) – 47 bls.