Nótuútgáfan var stofnuð árið 1994 af Gylfa Garðarssyni utanum útgáfu sérvalinna söngvasafna fyrir skóla og almenna notkun. (Leit að efni í bókum Nótuútgáfunnar)
Gylfi lauk 6. stigi í klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins og útskrifaðist með lokapróf í tónfræði og tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1987. Helstu störf Gylfa í tónlistarmálum hafa verið á sviði nótnaútgáfu, í Danmörku til 1992 og eftir það á Íslandi.
Gylfi var hvatamaður að stofnun SÍTÓN og stofnfélagi 2012. Hann hefur verið formaður félagsins frá stofnun.
Vefsíða: Söngbók.is