Jólasöngvar – Nótur / Textar – Textar, nótur, hljómar (Innihald)
Bækurnar Jólasöngvar – Nótur/Textar eru samhæfð safnrit með sönglög jóla og áramóta flokkuð í AÐVENTU, JÓLADANSA, JÓLAHÁTÍÐ og ÁRAMÓT. Nótnabókin er hugsuð fyrir hljóðfæraleik og söngstjórn en textabókin fyrir almennan söng sömu laga. Bækurnar innihalda samhæft lagaval, númeraröð og kafla. Öll textaerindi og aukatextar eru í textabókinni en í nótnabókinni aðeins þau erindi sem pláss er fyrir. Laglínunótur 93 söngva með bókstafahljómum eru í nótnabókinni og eru 118 söngtextar við þau sömu lög í textabókinni. Bókstafahljómar eru yfir laginu, oftast í samræmi við frumheimild. Við mörg laganna í nótnabókinni er getið um uppruna svo sem erlent heiti lags ásamt heimildatilvísunum. Heimildaskrá er aftast í nótnabókinni ásamt efnisyfirliti fyrir báðar bækur með lagaheitum, upphöfum, viðkvæðum og laganúmerum.
Efnisval og framsetning: Gylfi Garðarsson
Nótuútgáfan – 1996/../2008 – ISBN 9979921420 – A5 – 111 bls. (nánar á Leitir.is)
Jólasöngvar – Nótur
93 íslensk og erlend jóla- og áramótalög fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik. (Innihald)
Bókarhöfundur: Gylfi Garðarsson (Efnisval, framsetning, nótnasetning, umbrot)
Nótuútgáfan – 1996/../2008 – A5 – 111 bls. Um útgefandann
Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar.
Útgefandi | |
---|---|
Ritröð |
Áhugavert efni
Jólasöngvar – Textar
118 söngtextar við 93 íslensk og erlend jóla- og áramótalög fyrir einstaklings- eða samsöng. (Innihald) Bókarhöfundur: Gylfi Garðarsson (Samval, framsetning, nótnasetning, umbrot) Nótuútgáfan – 1996 – A6 – 120 bls. Um útgefandann Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar.
Sígild sönglög 1
100 "rútubílasöngvar", íslensk og erlend lög fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik. INNIHALD Bókarhöfundur: Gylfi Garðarsson (Efnisval, framsetning, nótnasetning, umbrot) Nótuútgáfan – 1993/../2005 – A5 – 125 bls. Um útgefandann Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar.
Sígild sönglög 2
100 "rútubílasöngvar", íslensk og erlend lög fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik. INNIHALD Bókarhöfundur: Gylfi Garðarsson (Samval, framsetning, nótnasetning, umbrot) Nótuútgáfan – 1995/../2004 – A5 – 138 bls. Um útgefandann Fæst hjá Tónastöðinni og í netverslun Nótuútgáfunnar.